Allt of kalt brrrrrrr

Já það er ógeðslega kalt úti var ekki sátt þegar ég vaknaði í morgun, langaði bara að liggja lengur í hlýja rúminu mínuFýldur

Vinnudjammið á morgun jibbí þetta verður eitthvað skrautlegt að vanda hehe jamm fer með skvísunum Dóru og Örnu þannig að mikið fjör mun vera þar, þær eru doltið crasySvalur, hehe það er búið að mana þær upp í syngja sem gæti orðið áhugavert... 

Trúi því bara varla að vikan sé að verða búin en ætla ekki að kvarta yfir því alltaf gott að komast í helgarfrí.....

Harpa ætlar svo að taka mig með sér upp í kjós á sunnudag, hlakka svo til að fá að sjá litla prinsinn hennar Þóreyjar sem er víst sætastur ooooo kling kling þetta er hættulegt allir að eignast krakka, held að eggin í mér séu að springa.....

Það verður nóg að gera í kvöld að máta föt fyrir morgundaginn þar sem að þetta byrjar kl 6, verð að reyna að vera skvísa svo ég fari nú að finna folann minn þetta gengur ekki lengur hehehehehe jamm er bjartsýn

Jæja verð að fara að vinna fullt að gera en bara 4 tímar eftir wúhú


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Noh... Begga bara að fara á höstlið, þú átt ekkert mál með að finna fola, en bjartsýn ef hann á að vera vinna hérna hehehe.. þú hefur þó alltaf Rúnar og Ægir.. hahaha...
Ég myndi fara að höstla á skaganum hef ekki séð marga ljóta stráka á skaganum... held það sé málið. en mér hlakkar til að vita hvernig þetta djamm verður í vinnunni kemur í ljós hvort þú ert brosandi á mánudaginn næsta eða hringir þig inn veika HAHA...

guðrún kvaran (IP-tala skráð) 26.10.2006 kl. 14:37

2 Smámynd: Begga

Ehmmmm nei takkkkk, held ég sætti mig barasta við piparkellulífið:(

Begga, 26.10.2006 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halló

Höfundur

Begga
Begga

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Dísurnar
  • Skutlurnar
  • Ég orðin aðeins of drukkin
  • Vei
  • Gummi og Dóra

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 328

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband